Eignamarkaðurinn
Eignamarkaðurinn er hugsuð sem þörf viðbót við fasteignasöluflóruna. Metnaðarfullt starfsfólk okkar hefur heiðarleika og vandvirkni að leiðarljósi og leggur áherslu á skilvirk vinnubrögð í kynningar- og markaðsstarfi fyrir hverja einustu eign.
Við hugsum öðruvísi og framkvæmum
Við byggjum á hefðinni en nýtum einnig allar nýjungar í markaðssetningu til þess að ná sem bestum árangri. Við sérsníðum kynningu hverrar eignar eins og henni hæfir best svo kostir hennar komist skilvirkt til raunverulegs kaupendahóps.
Starfsfólk Eignamarkaðsins stendur þétt að baki öllum viðskiptavinum okkar frá upphafi til enda fasteignaviðskiptanna hvort sem um sölu, kaup eða leigu er að ræða. Og ef upp koma vandamál hjá viðskiptavinum okkar beintengd eða ótengd fasteignaviðskiptunum, þá er starfsfólk okkar til þjónustu reiðubúið.
Öll skjalagerð og bein störf fasteignasala eru í höndum þeirra Böðvars Reynissonar löggilts fasteignasala og Jóhanns K. Guðmundssonar hdl., löggilts fasteignasala og leigumiðlara.
Auk sölu á íbúðar- og atvinnuhúsnæði leggur Eignamarkaðurinn ríka áherslu á útleigu atvinnu- og íbúðarhúsnæðis.
Við hlökkum til að þjónusta þig í þínum stærstu viðskiptum á lífsleiðinni og munum leggja allt okkar kapp á að gera þau eins ánægjuleg og kostur er.
Virðingarfyllst,
Starfsfólk Eignamarkaðsins
Eignamarkaðurinn ehf.
kt. 690916-1500
Vsk. nr. 125893
Ármúli 4-6
s: 519-8484
[email protected]
Ábyrgðarmaður fasteignasölunnar er
Böðvar Reynisson, lögg. fasteignasali.
[email protected]